| þriðjudagur, 5. desember 2006 |
| Allt að gerast |
Jæja jæja nú er ég hálfnuð með prófin og dóttir mín að jafna sig eftir veikindi síðustu vikna, það er aldeilis tímasetningin hjá dömunni. Ég veit að ég er fallin í dönsku sem er prófað í á morgun og ábyggilega íslensku líka útaf því að kennarinn ákvað að prófa úr fullt af efni sem við vorum aldrei búin að fara yfir! Þar af leiðandi vissi ég ekki neitt í íslensku prófinu og bullaði heilan heilling, ég gat reyndar svarað spurningunum úr Mýrinni (sú bók var ekki einu sinni á bókalistanum!) Ég var svo heppin að hafa bæði lesið bókina og séð myndina. Ég er samt viss um að ég sé fallin útaf því að Mýrin gildir bara 15%. Annars er bara allt ágætt að frétta, bara búið að vera mikið að gera hjá mér, verð að reyna að versla þessar blessuðu jólagjafir um helgina og svo á ég eftir að klára jólakort og dagatöl, föndra föndra! Talandi um helgarfrí! En nú verð ég að fara að reyna að svæfa barnið og sjálfa mig Bless, veriði hress...!
Emilía |
posted by Emilia @ 22:58  |
|
| 1 Comments: |
-
já hellvítiss próf....það voru líka atriði á p´rofi hjá mér sem ég kannaðist ekkert við...er ekki fyrir sona klunna skap...vonum að við náum þessu fyrir heppni öllu saman:)
|
| |
| << Home |
| |
|
|
|
| Fólkið |
|
|
Börnin |
|
|
Bland |
|
|
Gamalt |
|
| Powered by |
 |
|
já hellvítiss próf....það voru líka atriði á p´rofi hjá mér sem ég kannaðist ekkert við...er ekki fyrir sona klunna skap...vonum að við náum þessu fyrir heppni öllu saman:)