| miðvikudagur, 29. nóvember 2006 |
| Lærdómur og útlendingar |
jæja, önnur bloggfærslan komin í hús! Ég er að reyna að taka sögupróf hérna, dóttir mín er bara með hita og er ekki alveg að leyfa mér það. Ég átti reyndar að taka það í gær en Sara fór ekki að sofa fyrr en að ganga 12 þannig að ég sendi kennaranum póst og fæ að skila því í dag, ég á svo skilningsríka kennara :) Ég fór áðan til læknisins og lét hann taka saumana mína, sem er mjög gott (fyrir þá sem vita ekkert um hvað ég er að tala þá fáiði ekki að vita meir, sorry!) En hvað er annars málið með alla þessa útlendinga? ég tek það fram að ég hef ekkert á móti útlendingum en í dag byrjaði strákur að vinna hjá okkur sem er útlendingur og í gær byrjaði einn í hfj sem er líka útlendingur, hann heitir nota bene Sphende (lesist spennt). Mér finnst samt lámark að það sé hægt að tala íslensku við þetta fólk! Sphende skilur t.d. ekkert afhverju mér finnst nafnið hans fyndið! Síðan í fyrradag er lagið "spenntur" með Á móti sól búið að hljóma í eyrunum á mér, allt honum að kenna! En nú verð ég eigilega að klára þetta próf þarsem það gildir víst 20%!
Bless á meðan
Emilía
|
posted by Emilia @ 20:08  |
|
| 2 Comments: |
-
Alltaf gott að hafa skilningsríka kennara með sér í liði. Fór í bónus í gær og vanhagaði um eitthvað og ég varð bara að gjöra svo vel að spurja á ensku :\
-
svona er þetta víst, mér líst ekkert á þessa þróun...
|
| |
| << Home |
| |
|
|
|
| Fólkið |
|
|
Börnin |
|
|
Bland |
|
|
Gamalt |
|
| Powered by |
 |
|
Alltaf gott að hafa skilningsríka kennara með sér í liði. Fór í bónus í gær og vanhagaði um eitthvað og ég varð bara að gjöra svo vel að spurja á ensku :\