| laugardagur, 16. desember 2006 |
|
| blog.central.is/millus ég er flutt þangað |
posted by Emilia @ 09:12  |
|
|
|
| föstudagur, 15. desember 2006 |
| blogg blogg blogg |
þetta ljóta blogg er pirrandi, ége r farinn eitthvað annað bless |
posted by Emilia @ 23:09  |
|
|
|
| mánudagur, 11. desember 2006 |
| ohhh |
| ég var búin að skrifa ógeðslega langt blogg sem eyddist allt út þannig að nú er ég í fýlu og ætla ekki að skrifa neitt! |
posted by Emilia @ 20:41  |
|
|
|
| þriðjudagur, 5. desember 2006 |
| Allt að gerast |
Jæja jæja nú er ég hálfnuð með prófin og dóttir mín að jafna sig eftir veikindi síðustu vikna, það er aldeilis tímasetningin hjá dömunni. Ég veit að ég er fallin í dönsku sem er prófað í á morgun og ábyggilega íslensku líka útaf því að kennarinn ákvað að prófa úr fullt af efni sem við vorum aldrei búin að fara yfir! Þar af leiðandi vissi ég ekki neitt í íslensku prófinu og bullaði heilan heilling, ég gat reyndar svarað spurningunum úr Mýrinni (sú bók var ekki einu sinni á bókalistanum!) Ég var svo heppin að hafa bæði lesið bókina og séð myndina. Ég er samt viss um að ég sé fallin útaf því að Mýrin gildir bara 15%. Annars er bara allt ágætt að frétta, bara búið að vera mikið að gera hjá mér, verð að reyna að versla þessar blessuðu jólagjafir um helgina og svo á ég eftir að klára jólakort og dagatöl, föndra föndra! Talandi um helgarfrí! En nú verð ég að fara að reyna að svæfa barnið og sjálfa mig Bless, veriði hress...!
Emilía |
posted by Emilia @ 22:58  |
|
|
|
| laugardagur, 2. desember 2006 |
| hóhóhó |
Ég veit að það vita ekki margir af þessu bloggi mínu, en ákvað að skella þessu hér inn mér til skemmtunar
Nafn mitt? Hvað er miðnafnið mitt? Hefuru hitt mig? Hvar kynntumst við? Hversu lengi hefurðu þekkt mig? Hversu vel þekkiru mig? Reyki ég? Hvað hugsaðiru fyrst þegar þú sást mig? Háralitur? Augnlitur? Á ég systkyni? Hvað finnst mér skemmtilegast að gera? Manstu eftir því fyrsta sem ég sagði við þig? Hvernig tegund af tónlist hlusta ég oftast á? Hver er minn besti eiginleiki? Hvort er ég feimin/nn eða mannblendin/nn? Hef ég einhveja sérstaka hæfileika? Ef það væri eitthvað flott gælunafn á mig hvað mundi það þá vera? Höfum við kysst? Hvað heldurðu að verði um mig framtíðinni? Heldurðu að ég eigi eftir að giftast? Hvernig manni heldurðu að ég eigi eftir að giftast? Hver er uppáhalds minning þín um eitthvað sem við höfum gert saman? Heldurðu að við eigum eftir að vera vinir í framtíðinni? Hvaða vin held ég mest uppá? Hef ég hjálpað þér? Hefur þú hjálpað mér? Þykir þér vænt um mig? Langar þig að faðma mig? Langar þér að kyssa mig? |
posted by Emilia @ 12:44  |
|
|
|
| miðvikudagur, 29. nóvember 2006 |
| Lærdómur og útlendingar |
jæja, önnur bloggfærslan komin í hús! Ég er að reyna að taka sögupróf hérna, dóttir mín er bara með hita og er ekki alveg að leyfa mér það. Ég átti reyndar að taka það í gær en Sara fór ekki að sofa fyrr en að ganga 12 þannig að ég sendi kennaranum póst og fæ að skila því í dag, ég á svo skilningsríka kennara :) Ég fór áðan til læknisins og lét hann taka saumana mína, sem er mjög gott (fyrir þá sem vita ekkert um hvað ég er að tala þá fáiði ekki að vita meir, sorry!) En hvað er annars málið með alla þessa útlendinga? ég tek það fram að ég hef ekkert á móti útlendingum en í dag byrjaði strákur að vinna hjá okkur sem er útlendingur og í gær byrjaði einn í hfj sem er líka útlendingur, hann heitir nota bene Sphende (lesist spennt). Mér finnst samt lámark að það sé hægt að tala íslensku við þetta fólk! Sphende skilur t.d. ekkert afhverju mér finnst nafnið hans fyndið! Síðan í fyrradag er lagið "spenntur" með Á móti sól búið að hljóma í eyrunum á mér, allt honum að kenna! En nú verð ég eigilega að klára þetta próf þarsem það gildir víst 20%!
Bless á meðan
Emilía
|
posted by Emilia @ 20:08  |
|
|
|
| þriðjudagur, 28. nóvember 2006 |
|
Halló halló
Ég hef ákveðið að skella mér á eina svo bloggsíðu, hún Tobba gerði þetta reyndar að mestu fyrir mig, hún er svo mikið yndi! Við sjáum svo bara til hvort þetta gangi eitthvað upp hjá mér
Þar til næst
Emilía bloggari!
|
posted by Emilia @ 21:21  |
|
|
|
|
| Fólkið |
|
|
Börnin |
|
|
Bland |
|
|
Gamalt |
|
| Powered by |
 |
|